Vinnustofa í bókhaldi

30.000 kr.

Leiðbeinendur
No data was found
Almennt um námið
Það geta allir fært bókhaldið sitt að öllu eða einhverju leiti. Við kennum þér að færa bókhaldið í því bókhaldskerfi sem þú ert að nota eða vilt nota. Ef þú ert með rekstur þá þarftu enga sértaka kunnáttu eða reynslu þú þarft einungis að mæta til okkar með bókhaldsgögnin og við leiðum þig af stað. Ef þú ert ekki með bókhaldskerfi þá getum við hjálpað þér að velja rétta lausn sem hentar þér best.

Mættu á eina vinnustofu og þú munt öðlast nýja sýn.

Við kennum á Uniconta, DK, Payday og Reglu. Þú getur fengið aðgang að bókhaldskerfi en þarft að koma með þín gögn.
Hugsað fyrir þá sem eru með eigin rekstur og/eða eru að færa bókhald.
Um er að ræða vinnustofur í staðarnámi sem spanna 3 klukkustundir í senn. Þær verða haldnar í húsnæði skólans að Hlíðasmára 9 Kópavogi, á miðvikudögum klukkan 16.00-19.00.

Þátttakendafjöldi er takmarkaður og mikilvægt að fólk velji sér dagsetningu til að mæta með því að senda beiðni á gudrunoa@ntv.datacenter.is

    Ganga þarf frá greiðslu áður en námskeið hefst.
    Við bjóðum upp á eftirfarandi greiðslumöguleika:

    1. Innlegg í heimabanka NTV: 0545 – 26 – 44. Kt: 681096-2729

    2. Fá kröfu í heimabanka einstaklings eða fyrirtækis til að greiða þar. Sendið beiðni á hrund@ntv.datacenter.is

    3. VISA eða MasterCard lán (raðgreiðslur) til allt að 36 mánaða

    4. Netgíró https://www.netgiro.is/. Hámarksfjárhæð er 1.000.000 kr. til allt að 24 mánaða

    5. Pei.is http://pei.is/ Hámarksfjárhæð er 2.000.000 kr. til allt að 48 mánaða

    Kynntu þér vel mögulega styrki, reglur um endurgreiðslu ofl hér

    Meðmæli

    Ég skráði mig í nám hjá NTV til að læra bókhald þar sem maðurinn minn er að reka eigið fyrirtæki. Markmiðið var að geta séð um bókhaldið sjálf þar sem við þekkjum reksturinn okkar best. Til að ná því markmiði skráði ég mig í þriggja anna bókhaldsnám hjá skólanum og hefur það gefið mér grunnþekkingu...

    Stephanie Mauler

    Ég hef rekið fyrirtæki í nokkur ár og fannst ég þurfa að dýpka mig betur í bókhaldinu. Fór á Vinnustofu í bókhaldi hjá NTV sem var bæði gagnlegt og skemmtilegt. Öðlaðist meiri skilning og þetta var vel skipulagt. Takk fyrir mig.

    Jón Karlsson

    Ég er lögmaður og hef verið í sjálfstæðum rekstri í rúmt ár. Ég lét færa bókhaldið fyrir mig en það fór samt töluverður tími í það hjá mér að hafa reiður á gögnum og útskýra fyrir bókaranum hvað ég hafði eiginlega verið að gera. Ég var líka hrædd um að hafa ekki yfirsýn svo ég...

    Eva Hauksdóttir

    Vinnustofa í bókhaldi – Vinnustofa

    Kr. 30.000 / 1x vinnustofa miðvikudagur frá kl. 16:00-19:00. Veldu miðvikudag sem hentar og settu í athugasemd í skráningu. Vinsamlega sendu líka beiðni á gudrunoa@ntv.datacenter.is þar sem hún mun staðfesta daginn.

    Verð: 30.000 kr.

    Fleiri námsleiðir

    1.449.000 kr
    765.000 kr
    895.000 kr
    325.000 kr
    735.000 kr
    850.000 kr
    Fyrsti hluti í kerfisstjórnun
    729.000 kr
    1.385.000 kr