Forritun

Yfirgripsmikið nám sem spannar þrjár annir. Kenndir eru allir helstu færniþætti sem forritarar þurfa að tileinka sér til að starfa við hugbúnaðarsmíði. Ef þú ert ekki viss hvar áhugi og hæfileikar þínir liggja þá er boðið upp á nokkurra vikna grunnnám, án skuldbindinga um framhald.

Í Forritun diplómanáminu sem er 3 annir – eru kenndir allir helstu færniþætti sem forritarar þurfa að tileinka sér til að starfa við hugbúnaðarsmíði. Námið miðast aðallega við framendaforritun en þó með góðum skilningi á bakenda.

Námið miðast alltaf við þarfir markaðarins á hverjum tíma. Með það að leiðarljósi að framúrskarandi nemendur fái góð tækifæri á íslenskum atvinnumarkaði. Kennararnir á brautinni eiga það allir sameiginlegt að vera í fullu starfi við forritun hjá stórum framsæknum fyrirtækjum.

Námsleiðir

"Smakkið" eins og við köllum það

184.500 kr.

"Smakkið" eins og við köllum það
VERÐ

184.500 kr.

Í dag vantar fjölda forritara til starfa enda er mikil gróska í faginu. Margir hafa áhuga á að læra forritun en vita kannski ekki hvað starfið felur í sér. Tilgangur þessa námskeiðshluta er að bjóða nemendum að kynnast grunnatriðum forritunar með möguleika á því að halda áfram námi. Ef nemandanum líkar grunnhlutinn, þá getur hann haldið beint áfram og klárað fyrstu önnina. Hefst 17. september 2025. Skráning stendur yfir.

437.500 kr.

VERÐ

437.500 kr.

Á fyrstu önn í forritun læra nemendur grundvallaratriði forritunar og fræðast um smíði snjallsímaforrita með Flutter sem er nýtt forritunarumhverfi frá Google. Auk þess fá nemendur þjálfun í viðmótshönnun og notendaupplifun. Önninni lýkur með lokaverkefni. Hefst 17. september 2025. Skráning stendur yfir.
Diplómanám (3 annir)

1.324.500 kr.

Diplómanám (3 annir)
VERÐ

1.324.500 kr.

Yfirgripsmikið Diplómanám sem spannar þrjár annir. Kenndir eru allir helstu færniþættir sem forritarar þurfa að tileinka sér til að starfa við hugbúnaðarsmíði. Námið miðast aðallega við framendaforritun en þó með góðum skilningi á bakenda. Námið miðast alfarið við þarfir markaðarins á hverjum tíma með það að leiðarljósi að framúrskarandi nemendur fái góð tækifæri á íslenskum atvinnumarkaði. Hefst 17. september 2025.

492.500 kr.

Á þessari önn læra nemendur að hanna skýjalausnir. Nemendur læra að forrita kerfi sem eru með viðmót í vafra og eru því ekki bundin við ákveðin stýrikerfi og henta m.a. fyrir snjalltæki. Þessi hluti er í boði í blönduðu námsformi staðar- og fjarnám fyrir þá sem það kjósa, en auðvitað líka í hreinu fjarnámi. Hefst 18. september 2025

507.000 kr.

Í þessum hluta er áhersla lögð á bakendaforritun, gagnvirk samskipti við vefþjónustu ásamt tengingu og skipulagi í gagnaumhverfinu. Nemendur vinna að gerð vefja og/eða snjallsímaforrita með gagnagrunni í skýjaumverfi. Þriðja önnin er alltaf kennd á haustönn en einnig á vorönn ef næg þátttaka er. Viðfangsefni þessarar annar er kennt í fjarnámi og að hluta til í einkakennslu. Hefst 18. september 2025 ef næg ásókn verður, en annars næsta önn á eftir (auglýst síðar). Skráning stendur yfir.

Fréttir

Nýr samstarfsaðili CertNexus

NTV-Promennt hefur hafið samstarf við kennslu- og vottunarfyrirtækið CertNexus. Það samstarf mun fjölga til muna námskeiðum í námsleiðum sem tengjast gervigreind, gagnavísindum og öryggi. Fyrsta námskeiðið með kennslu efni frá þessum aðila veður sett á dagskrá í haust sjá nánar: hér Um CertNexus: CertNexus er hlutlaust vottunarfyrirtæki sem veitir vottanir og örvottanir fyrir nýja tækni sem tengist viðskiptum, gögnum, þróun, upplýsingatækni og öryggissérfræðingum. Markmið CertNexus er að aðstoða við að styrkja alþjóðlega hæfni í nýrri tækni um leið og einstaklingar fá frábært tækifæri til að hlúa enn betur að lofandi starfsferli í gervigreind (AI), gagnavísindum, gagnasiðfræði, Interneti hlutanna (IoT) og...

Microsoft AI Skills Fest – þér er boðið

NTV – Promennt kynnir úrval af fríum alþjóðlegum námskeiðum í streymi um gervigreind á vegum LLPA (Leading Learning Partner Associtaion) í samstarfi við Microsoft dagana 8. – 15. apríl. Námskeiðin eru stíluð inn á mismunandi hópa svo sem stjórnendur, sérfræðinga og svo alla áhugasama um notkun gervigreindar í lífi og starfi. Fyrir þá sem eru komnir lengra þá eru mjög áhugaverð námskeið tengt Copilot innleiðingu og notkun Copilot í Azure umhverfi. Um er að ræða mörg og mismunandi námskeið í boði á tímabilinu 8.-15. Apríl, allt frá 60 mínútna námskeiðum upp í mun lengri. Dæmi um nokkur mjög áhugaverð námskeið...

Jólakveðja

Óskum öllum nemendum og þátttakendum okkar nær og fjær gleðilegrar hátíðar. Takk fyrir samfylgdina á árinu.

Cyber Security Day – þér er boðið !

Promennt og NTV kynna frítt alþjóðlegt vefnámskeið um netöryggi á vegum Microsoft og LLPA þann 17. Október. Ráðstefnan fer fram á Microsoft Teams þar sem reyndir alþjóðlegir sérfræðingar kafa djúpt í nýjustu hættur og varnir í netöryggi í dag. Viðburðurinn gefur þátttakendum tækifæri á að læra hagnýtar strategíur til þess að vernda sín fyrirtæki gegn ógnum í netöryggi sem eru sífellt að þróast. Uppfærð frétt: Námskeiðið tókst ótrúlega vel og fjöldi þátttaka langt umfram væntingar. Alls voru 285 íslenskir viðskiptavinir og velunnarar sem tóku þátt. NTV Promennt vakti mikla athygli á ráðstefnu LLPA fyrir þátttakendafjölda frá Íslandi í ljósi mannfjölda.

Advania styrkur til náms í kerfisstjórnun

Advania ætlar að styrkja eina konu til náms hjá NTV skólanum í Kerfisstjórnun Diplómanám. Í samstarfi við Advania er sérstakt átak í gangi núna til að vekja athygli kvenna á kerfisstjórnun. Mikil eftirspurn er eftir menntuðum kerfisstjórum í atvinnulífinu en hingað til hafa karlar verið í miklum meirihluta þeirra sem sinna starfinu. Advania styrkinn er sem nemur 50% af námskeiðsgjöldum námsbrautarinnar. Áhugasamir einstaklingar eru beðnir um að skrifa um það bil 300-400 orða greinargerð með námsumsókninni um hvers vegna það hafi áhuga á náminu og lýsingu á því hvers vegna það ætti að fá styrkinn. Nauðsynlegt er að taka fram...

Gagnameistarinn, margir mjög sáttir -nokkrar reynslusögur.

Gagnameistarinn, er nýleg námsleið hjá NTV skólanum, þar sem áherslan er á gagnagreiningu og högun og framsetningu stjórnendaupplýsinga.  Mikill  metnaður hefur verið lagður í þessa námsleið og sérfræðiteymið sem sér um kennsluna er einstakt. Mörgum hefur gengið vel að vinna með eigin gögn og gagnaumhverfi og þótt það mjög gagnlegt og verðmætt. Við höfum fengið einstaklega jákvæðar reynslusögur frá nokkrum aðilum, sem eru áhugaverðar og þú getur lesið betur um það hér. „Kom skemmtilega á óvart hvað það er auðvelt að búa til app í Power Apps og tengja við gagnasöfn og vinna úr.“  Oddur Einarsson, Bcs í vélaverkfræði, starfar...