Netöryggi – Framabraut

2ja anna nám
Verð

1.449.000 kr.

Leiðbeinendur
Almennt um námið
Sérlega mikil eftirspurn er eftir fólki með sérfræðimenntun og sérfræðiþekkingu í upplýsingatækni um þessar mundir og leita íslensk fyrirtæki í sívaxandi mæli eftir starfsfólki í nemendahópi NTV. Til þess að gera fólki kleift að kynnast þessum spennandi markaði bjóðum við hjá NTV upp á þessa geysilega öflugu tveggja anna námsbraut í Netöryggi sem samanstendur af 6 námseiningum.

Allir kennarar á Framabraut-Netöryggi eiga það sameiginlegt að búa yfir gríðarlega mikilli reynslu í upplýsingatækni og hafa flestir þar að auki Microsoft Certified Trainer gráðu frá Microsoft.
Um er að ræða mjög gagnlega og áhugaverða námsbraut sem gerir talsverðar kröfur til nemenda. Þetta nám hentar þeim sem hafa áhuga á að gera sér frama á upplýsingatæknisviði með Netöryggi sem aðalgrein. Námið er því upplagt fyrir byrjendur í upplýsingatækni þar sem hvorki er krafist reynslu né annarrar menntunar á sviði upplýsingatækni. 
    Bæði í boði í staðarnámi og fjarnámi.
    Öllum kennslutímum er streymt fyrir þá sem eru í fjarnámi og þeir eru þátttakendur í tímanum. Streymið er vistað fyrir þá sem missa af kennslutíma og auðvitað til að nota í upprifjun. Staðarnámsnemendur hafa líka aðgang að sama efni.

Ef þú leggur þig virkilega fram í þessu krefjandi námi þá munt þú að öðlast góða grunnþekkingu og skilning á netöryggi á sviði upplýsingatækni og opna tækifæri til að þróa þig áfram og byggja starfsframa á því sviði.
Sjá námsþætti hér að neðan.
    1. hluti: Netkerfi / Networking ► 50 kennslustd.
    Í fyrsta hluta námsbrautarinnar er farið yfir grunnatriði í vinnu við netkerfi (Networking) sem er nauðsynleg undirstaða fyrir seinni einingar framabrautarinnar. Stuðst er að mestu við námsefnið Network+ frá Comptia.

    2. hluti: Fortinet NSE 1 / NSE 2 / NSE 3 ► 11 kennslustd.
    Hér er farið í grunnþætti netöryggis.

    3. hluti: Comptia security+ ► 50 kennslustd.
    Comptia Security+ er alþjóðlega viðurkennd gráða sem staðfestir grunn þekkingu viðkomandi í tölvuöryggi og rekstri tæknibúnaðar. Námskeiðið kennir meðal annars: Hvernig maður metur öryggisstig tölvurekstrar og leiðir til að bæta það, daglegan öruggan rekstur og utanumhald um fjölbreytt tölvuumhverfi, meðal annars skýjahýsingar, farsíma og spjaldtölvur og IoT tæki, lýsingu á lögum og regluverki sem við þurfum að fylgja í dag, hvernig við fylgjumst með atburðum í tölvurekstri, greinum atvik og bregðumst við þeim.

    4. hluti: Fortinet NSE 4 ► 63 kennslustd.
    Þetta námskeið er NSE4 eru í grunninn 3 námskeið, sjá lýsingar hér að neðan:

    Fortigate Security
    Á þessu námskeiði munt þú læra hvernig á að nota helstu eiginleika FortiGate, þar á meðal öryggissnið.
    Notaðar eru sýndarvélar til að prófa eldveggi og reglur í þeim, notendavottun og hvernig á að vernda netkerfi með notkun mismunandi aðferða, svo sem innbrotavörnum, vírusvörnum, vefsíun, forritastýringu og fleira. Þessi grundvallaratriði öryggisstjórnunar veita skilning á því hvernig á að innleiða grunn í netöryggi.
    Lengd: 3 dagar ( 6 skipti)

    Fortigate Infrastructure
    Á þessu námskeiði munt þú læra hvernig á að nota algengustu FortiGate net- og innviðaeiginleikana. Meðal þess sem farið er í eru öryggisleiðir sem almennt eru notaðar í flóknum og stærri netkerfum en einnig öryggisstýrðum netkerfum, svo sem háþróuðum beinum, sýndarlénum (VDOM), ZERO Trust netaðgangur (ZTNA), SSL VPN, IPsec VPN, Single Sign On og greiningar áhættu.
    Lengd: 2 dagar (4 skipti)

    NSE4 Immersion
    Í þessum hluta námskeiðsins er fyrst og fremst unnið í sýndarumhverfi og farið í mörg þeirra atriða sem koma fyrir í NS4 prófinu eins og eldveggjareglur, aðgangsvottun o.fl.
    Lengd: 1 dagur (2 skipti)

    5. hluti: Cybersecurity Analyst+ ► 50 kennslustd.
    CompTIA CySa+ er alþjóðlega viðurkennd gráða sem byggir ofan á þekkinguna úr CompTIA Security+, námskeiðið kennir til að mynda það að setja upp búnað fyrir eftirlit og varnir gegn atburðum, greina hættur í nettraffík og bregðast við þeim. Einnig er kennt öruggt utanumhald forrita og búnaðar í rekstrarumhverfi fyrirtækja. Varnir og viðbrögð við mögulegum innbrotum og greining á atburðum, innleiðing öruggari tölvureksturs fyrirtækja með sterkri fylgni við öryggisstaðla, stefnur og viðeigandi regluverk.

    6. hluti: Microsoft Security, Compliance, and Identity Fundamentals (SC-900) ► 20 kennslustd.
    Þetta námskeið veitir grunnþekkingu á öryggishugtökum, eftirliti og hlítingu (laga og staðla ss. GDPR, ISO...) og auðkenningarhugtökum og tengdum skýjatengdum Microsoft lausnum.

    7. hluti: Microsoft Security Operations Analyst (SC-200) ► 40 kennslustd.
    Þetta er námskeið sem fjallar um hvernig er hægt að rannsaka, bregðast við og leita að ógnum með því að nota Microsoft Sentinel, Microsoft Defender for Cloud og Microsoft 365 Defender. Á þessu námskeiði munt þú læra hvernig hægt er að draga úr netógnum með því að nota þessa tækni. Nánar tiltekið munt þú stilla og nota Microsoft Sentinel auk þess að nota Kusto Query Language (KQL) til að framkvæma uppgötvun, greiningu og skýrslugerð. Námskeiðið var hannað fyrir fólk sem vinnur í öryggisaðgerðahlutverki og hjálpar nemendum að undirbúa sig fyrir prófið SC-200: Microsoft Security Operations Analyst.

    8. hluti: Verkefnadagar/lokaverkefni seinni annar  ► 30 kennslustd.
    í lok annar leggjum við lokaverkefni fyrir nemendur sem byggir á því efni sem kennt hefur verið á námskeiðinu. Að okkar mati er mikilvægt að fá að vinna með búnaðinn. Nemendur útbúa einnig verkáætlun sem byggir á ákveðnum kröfum sem settar eru fyrir.

Að loknu námi fá nemendur diplóma svo fremi sem þeir standast frammistöðumat.
Staðnám eða fjarkennsla í beinni - þitt er valið!

Kennslan fer fram í Hlíðasmára 9 en hægt að taka þátt í fjarkennslu í beinni útsendingu. Það þýðir einfaldlega að þú getur tekið þátt í kennslustundinni algjörlega óháð staðsetningu. Hvort sem þú býrð á höfuðborgarsvæðinu og hefur ekki tök á að mæta í kennslustofuna, býrð úti á landi eða ert erlendis, það skiptir ekki máli.Við viljum vekja sérstaklega athygli á að hægt er að stunda bæði staðnám og fjarnám á sama námskeiðinu, þ.e. mæta stundum á staðinn og stundum vera á línunni, allt eftir því hvað hentar hverjum nemanda.

Nemendur upptökur af öllum kennslustundum í Microsoft Teams. Upptökurnar veita góðan stuðning við námið sem mun gagnast nemendum vel hvort sem námið er stundað í fjarkennslu eða í staðnámi.
Ganga þarf frá greiðslu áður en námskeið hefst.
Við bjóðum upp á eftirfarandi greiðslumöguleika:

1. Innlegg í heimabanka NTV: 0545 – 26 – 44. Kt: 681096-2729

2. Fá kröfu í heimabanka einstaklings eða fyrirtækis til að greiða þar. Sendið beiðni á hrund@ntv.datacenter.is

3. VISA eða MasterCard lán (raðgreiðslur) til allt að 36 mánaða

4. Netgíró https://www.netgiro.is/. Hámarksfjárhæð er 1.000.000 kr. til allt að 24 mánaða

5. Pei.is http://pei.is/ Hámarksfjárhæð er 2.000.000 kr. til allt að 48 mánaða

Kynntu þér vel mögulega styrki, reglur um endurgreiðslu ofl hér

Skráning

Netöryggi – Framabraut – Fjarnám

Hefst: 14. Oct '25
Lýkur: 28. May '26
Fjarkennsla í beinni á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:30-21:00 og valda laugardaga kl. 09:00-16:00. Öll kennsla aðgengileg eftirá á myndböndum.

Verð: 1.449.000 kr.

Netöryggi – Framabraut – Kvöldnám

Hefst: 14. Oct '25
Lýkur: 28. May '26
Kennt á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:30-21:00 og valda laugardaga kl. 09:00-16:00

Verð: 1.449.000 kr.

Meðmæli

Ég valdi Framabraut-Netöryggi þar sem að vinnuveitandi minn stendur frammi fyrir því að þurfa að uppfylla NIS2 tilskipunina.  Þar að auki hef ég lengi haft mikinn áhuga á netöryggi og hefur það verið partur af starfi mínu í fjölda ára.  Námsefnið var fjölbreytt og tók á öllum þáttum netöryggis, allt frá svissum og upp í...

Hallgrímur G. Njálsson

Ég valdi Framabraut – Netöryggi af því að ég hef alltaf haft mikinn áhuga á netöryggi og vildi sérhæfa mig í þeim málum. Ég hafði unnið í upplýsingatækni í 8 ár og sóttist alltaf í verkefni sem tengdust netöryggi þegar tækifæri gafst til. Fyrirkomulag námsins hentaði mér vel þar sem ég var í fullri vinnu...

Brynja Dóra Birgisdóttir

Fleiri námsleiðir

1.449.000 kr.

VERÐ

1.449.000 kr.

Þessari námsbraut er ætlað að mæta þeirri þörf, sem skapast hefur á síðustu árum, eftir sérfræðingum í netöryggismálum. Við heyrum allt of oft af netárársum sem gerðar eru á fyrirtæki og stofnanir út um allan heim og því er þörfin mikil á að fjölga sérfræðingum í greininni.
Námið gerir ekki kröfu um að nemendur hafi víðtæka þekkingu á öryggismálum en reynsla og þekking á virkni upplýsingakerfa hjálpar í náminu þó það sé alls ekki krafa.
Hefst næst 14. október 2025.

765.000 kr.

VERÐ

765.000 kr.

Þessi námshluti er 2. önnin í Kerfisstjórnunarnáminu, beint framhald af Kerfisstjórnun grunnur, sem er 1. önnin. Mikil áhersla á Microsoft tölvukerfi í skýjaumhverfi. Þessi önn er undirbúningur fyrir alþjóðlegar vottanir frá Microsoft sbr (MS-102), (PL-7001), (PL-7002), (PL-7003), (AI-900), (MS-700), (MS-721), (SC-900), (SC-200). Sjá nánar í námslýsingu. Hefst 27. ágúst 2025. Skráning stendur yfir.

895.000 kr.

VERÐ

895.000 kr.

Netstjórnun er námsbraut sem er hugsuð fyrir þá sem hafa áhuga á að vinna með netkerfi t.d. í stærri fyrirtækjum. Námsbrautin byggist annars vegar á Grunnur að netkerfum og síðan netstjórnun í Cisco CCNA Routing & Switching. Í boði er hvort tveggja fjarnám og staðarnám. Hefst 1. október 2025. Skráning stendur yfir.

325.000 kr.

VERÐ

325.000 kr.

Þetta fjölbreytta námskeið er undirbúningur fyrir alla þá sem vilja starfa við netkerfi. Nemendur öðlast skilning á kerfunum og verða færir um að leysa vandamál sem tengjast netkerfum og upp kunna að koma. Hefst 1. október 2025. Skráning stendur yfir.

735.000 kr.

VERÐ

735.000 kr.

Ef þú hefur áhuga á að verða sérfræðingur í uppbyggingu tölvuneta þá er þetta námskeið fyrir þig. Næsta CCNA námskeið er 20. október 2025. Skráning stendur yfir.

850.000 kr.

VERÐ

850.000 kr.

CCNP Enterprise er krefjandi framhaldsgráða fyrir þá sem þegar hafa lært CCNA. Námið styrkir grunnþekkingu úr CCNA með því að fara betur ofan í saumana á samskiptastöðlum og uppbyggingu netkerfa. Nemendur eru hvattir til að skrá sig sem fyrst þar sem takmarkaður sætafjöldi er í boði sökum vélbúnaðar. Hefst 16. október 2025. Skráning stendur yfir.